Spurt og svarað

Almennt

Hvað er Handtak.is?

Handtak.is er samsiptasíða sem auðveldar samskipti milli þjónustuaðila og þeirra sem vantar að fá verk, af ýmsu tagi, unnin fyrir sig. Þú skráir þig á Handtak.is, setur inn verklýsingu á því sem þú þarft að fá unnið, og í framhaldi getur þú valið um tilboð frá verktökum/þjónustuaðilum í verkið þitt. Verkkaupar velja viðeigandi flokk fyrir verkið en þannig fá viðeigandi aðilar strax upplýsingar með netpóst. Með Handtak.is getur þú fundið þjónustuaðila sem henta þér hvort sem um stórt eða smátt verk er að ræða.

Við bjóðum neytendum, einstaklingum og fyrirtækjum, þann munað að þurfa ekki að eyða mikilvægum tíma í að finna þjónustuaðila. Þið setjið verkið á einn stað vitandi að fjöldi áhugrasama aðila fær að vita um það.

Þegar tilboð hafa borist í verkið veljið þið þann sem ykkur líst best á, því þið getið bæði skoðað verð og svo hvað aðrir hafa um þá að segja.

Hvað er "Aðgerðastjórnun"?

Þín "Aðgerðastjórnunar" síða veitir þér aðgang og stjórn að verkum og millifærslum á einum stað. Þar getur þú breytt persónulegu upplýsingunum, skoðað verk/þjónustu sem þú hefur keypt eða ert að fara að kaupa (sem verkkaupi), skoðað hvaða verk þú hefur þegar fengið eða hefur þegar boðið í (sem þjónustuaðili), og skoðað þær aðgerðir sem þú hefur þegar gert hjá Handtak.is.

Hvað er hin svokallað skilaboðaskjóða?

Til þess að senda þjónustuaðila eða verkkaupa skilaboð er farið í skilaboðaskjóðuna. Þar er hægt að senda skilaboð sem allir sem viðkoma tilboðinu geta séð eða þá einkaskilaboð sem einungis sá aðili sér sem skilaboðið er ætlað. Til að komast í skilaboðaskjóðuna þarf að fara inn í ákveðið verk og neðarlega á síðunni fyrir miðju er slóð sem heitir "skilaboð" sem ýtt er á.

Hvernig get ég breytt eða uppfært persónulegu upplýsingunum?

Þú getur uppfært persónulegu upplýsingunum með því að fara í "Aðgerðastjórnun" og ýta á slóðina "Breyta upplýsingum".

Hvernig virkar Handtak.is?

Verkkaupi getur skráð sig inn, honum að kostnaðarlausu og sett inn verklýsingu á því verki sem honum vantar að fá unnið fyrir sig. Þjónustuaðilar fá samstundis að vita um verkið með netpósti og skoða svo verkupplýsingar næst þegar þeir komast á netið. Þegar verkkaupinn hefur fundið rétta þjónustuaðila, með viðeigandi sérþekkingu, og samið hefur verið um verð þá velur verkkaupinn þann þjónustuaðila. Þjónustuaðilinn þarf að staðfesta að hann sé ennþá laus áður en samningur kemst á.
Þegar nýr þjónustuaðili hefur skráð sig, getur hann byrjað að skoða hin ýmsu verk í mismunandi flokkum. Þá getur hann boðið í þau verk sem henta honum.

Greiðslur og verklok

Hvenær eru verklok?

Verklok eru uppgefin af verkkaupa þegar verklýsing er gerð. Sá afhendingartími skal standa nema annað sé sérstaklega umrætt á milli verkkaupa og þjónustuaðila en í þeim tilfellum er mikilvægt að það komi fram í skilaboðaskjóðunni eða tilboði þjónustuaðila.

Hvernig fara greiðslur fram ?

Verkkaupar skulu greiða fyrir verk samkvæmt því sem um er samið í tilboði þjónustuaðila. Almennt er alltaf ætlast til þess að verk séu að fullu greidd þegar þeim líkur að hálfu þjónustuaðila. Fyrir stærri verk er oft helmingur greiddur þegar verk er hálfnað og það sem eftir er þegar verki líkur.

Verkkaupar

Hve mikið kostar þetta?

Það kostar ekkert að skrá sig sem verkkaupa, skrá inn venjulega verklýsingu né að taka tilboði þjónustuaíla og það eru engin falin gjöld!

Forgangsverk kosta 2.250 kr. en þau verk eru merkt sérstaklega með áherslumerki og fara á lista yfir forgangsverk. Þetta eru því verk sem þjónustuaðilar taka sérstaklega eftir og því líklegt að þú fáir fleiri tilboð í þau. Þú þarft ekki að láta verkið þitt vera forgangsverk nema að þú viljir.

Hvernig get ég haft samband við þjónustuaila?

Þú getur skilið eftir einkaskilaboð handa þeim í skilaboðaskjóðunni. Ef þú skilur eftir einkaskilaboð þá getur einungis sá þjónustuaðili, sem skilaboðið er stílað á, lesið skilaboðið. Sá þjónustuaðili mun fá tölvupóst sendan til sín sem segir honum að skilaboð bíði hans í skilaboðaskjóðunni.

Hvernig get ég skráð mig sem verkkaupa og keypt þjónustu þjónustuaðila?

Ef þú ert nýr hjá Handtak.is, ýttu á "verkkaupar" slóðina sem er efst eða neðst á hverri síðu og þú munt vera leidd/ur í gegnum skráningarferlið.

Slóðin "Gera tilboð" birtist ekki heldur ef verkið hefur verið fryst þ.e. að tilboð í verkið hafa verið stoppuð af frá verkkaupans hendi.

Hvernig virkar einkunnagjöfin?

Sem verkkaupi, ættir þú að gefa sanngjarna og heiðarlega umsögn um þjónustuaðila, með hliðsjón af gæðum og faglegum vinnubrögðum hans þegar verki er lokið. Vinsamlegast athugið þó að ekki er hægt að breyta umsögn eftir að hún hefur verið skráð nema með því að hafa samband við Handtak.is. Eftirfarandi eru leiðbeiningar um einkunnagjöf verkkaupa:

9-10 stjörnur: Langt umfram væntingar mínar.
7-8 stjörnur: Umfram væntingar mínar.
5-6 stjörnur: Mætti væntingum mínum.
3-4 stjörnur: Mætti ekki væntingum mínum.
1-2 stjörnur: Langt undir væntingum.
Engin stjarna: Engin fyrri umsögn.

Þar að auki hvetur Handtak.is verkkaupa til að láta stutta umsögn fylgja með ef við á því oft er auðveldara að lýsa frammistöðu þjónustuaðilans með orðum frekar en einkunnum.

Hvernig virkar þetta?

Eftir að hafa skráð þig getur þú "Búið til verk" og látið fylgja nána lýsingu á því verki sem þig vantar að fá unnið fyrir þig. Þannig geta þjónustuaðilar séð verklýsingu þína og boðið í verkið ef það hentar þeim. Þetta virkar í raun eins og útboð þar sem þú ert í sambandi við þjónustuaðilan og þið getið t.d. samið um hvernig vinna skuli verkið með einkaskilaboðum í skilaboðaskjóðunni, því það er gott upp á stærri verk að samskipti séu skrifleg. Verkkaupinn getur verið í sambandi við nokkra þjónustuaðila varðandi kaup og kjör til þess að hjálpa sér við að velja þann sem hann telur henta sér best.

Eftir að samkomulagi hefur verið náð, þá velur þú þann þjónustuaðila, sem þú vilt láta vinna fyrir þig. Þjónustuaðilinn sem varð fyrir valinu getur svo valið hvort hann samþykki skilmálana, sem samið var um, eða hafnað þeim innan ákveðins tíma.

Ef þjónustuaðilinn svarar ekki innan fyrirfram ákveðins tíma (yfirleitt 24 klst) þá getur verkkaupinn framlengt tímaramma verksins. Ef þjónustuaílinn svarar innan tilsetts tíma þá getur hann/hún byrjað að vinna verkið.

Verð ég að leggja pening inn á reikninginn minn?

Þú þarft ekki að leggja neinn pening inn á reikning nema að þú ætlir að láta verkið þitt vera forgangsverk

Vita allir hver ég er þegar ég bý til verk?

Allir geta séð nafn en ekki samskiptaupplýsingar fyrr en þú ert tilbúinn að láta þær upplýsingar í té. Ef þú vilt að þá geturðu sett þær upplýsingar í útboðslýsinguna þína. Einnig geturðu látið þá vita sem þú vilt í gegnum skilaboðaskjóðuna.

Þjónustuaðilar

Af hverju finn ég ekki"Gera tilboð" slóðina á verkyfirlitssíðu?

Ef verkinu hefur þegar verið lokað þá birtist ekki "Gera tilboð" slóðin því verkkaupinn hefur þegar valið þjónustuaðila í verkið og verkinu því verið lokað.

Slóðin "Gera tilboð" birtist ekki heldur ef verkið hefur verið fryst þ.e. að tilboð í verkið hafa verið stoppuð af frá verkkaupans hendi.

Get ég áætlað hvað ég muni vilja taka mikið fyrir verk?

Þú ættir aldrei að gefa viðmiðunarverð/áætlunarverð nema að það sé sérstaklega tekið fram í tilboðinu þínu og verkkaupinn samþykkir það.

Upplýsingarnar sem þú færð frá verkkaupanum eiga yfirleitt að vera það góðar að þú getir ákveðið hve langan tíma verkið muni taka. Ef að þú telur þig ekki hafa nægar upplýsingar, ekki hika við að nota skilaboðaskjóðu verksins, til að spyrja þeirra spurninga sem þig vantar að fá svar við, áður en þú gerir tilboð.

Athugið, eftir að þjónustuaðili hefur gert tilboð, verkkaupi samþykkt og þjónustuaðilinn endanlega tekið tilboðinu þá er kominn fastur lagalegur samningur á milli ykkar. Verk skal þá unnið skv. útboðslýsingu verkkaupa og skýringum þjónustuaðila.

Get ég hringt í ykkur til að fá upplýsingar um verk?

Já, ef þú ert með greidda mánaðaráskrift getum við lesið upp og líst fyrir þér verkum sem hafa borist inn og þér þykja áhugaverð. Taktu upp tólið og bjallaðu á okkur í síma 8402540

Hvað geri ég ef ég hef spurningar varðandi verkið?

Neðst á hverri verkyfirlitssíðu (fyrir ofan tilboðin) er slóð (skilaboð) sem leiðir þig að skilaboðaskjóðu verksins.

Þú getur annað hvort sent inn skilaboð sem allir geta séð eða valið að senda skilaboð sem einungis verkkaupinn getur séð. Hann mun þá fá tölvupóst sem lætur vita að skilaboð bíði hans.

Hvað kostar þetta mikið?

Hægt er að velja um nokkra valkosti, en þeir eru eftirfarandi:

Stök greiðsla

Gjald fyrir að skoða einstakt verk og gera tilboð í það kostar 490 kr.

Inneign fyrir 5 verk

Inneign fyrir 5 verk kostar 2.250 kr. og þá getur þú opnað 5 verk.

Áskrift í 6 mánuði

Áskrift í 6 mánuði felur í sér ótakmarkaðan aðgang að öllum verkum og að gera tilboð í þau er 17.400 kr. (með vsk) sem er rétt um eins klst. tímalaun!

Áskrift í heilt ár

Áskrift í heilt ár felur í sér ótakmarkaðan aðgang að öllum verkum og tilboð í þau í heilt ár. Gjaldið fyrir það er 29.900 (með vsk) sem jafngildir tveimur mánuðum frítt.

Hvað merkir "Þitt tilboð í verkið"?

Þetta er sú heildarupphæð með vsk. sem þú kemur til með að taka fyrir verkið. Þú verður að vera búinn að áætla hve margir tímar fara í verkið og finna þannig heildarverð sem þú þú vilt fá fyrir verkið. Sú upphæð og afhending verður að standast m.v. upplýsingar frá verkkaupa og það sem ykkar hefur farið á milli í skilaboðaskjóðunni. Það er mjög mikilvægt því annars hættirðu á að fá ekki jafn góða umsögn og ella.

Hvenær fer verk af skrá?

Um leið og þú hefur samþykkt verkið, sem þú varst að bjóða í sem þjónustuaðili, þá verður verkinu lokað og það vistað.

Hvenær fæ ég netpóst?

Þú færð skilaboð send í hvert skipti sem verk kemur til okkar sem á við þína starfsgrein. Þetta auðveldar þér að vita hvernær þú átt að kíka á vefinn eftir verkum.

Hvernig geri ég tilboð í verk?

Ýttu á "Gera tilboð" slóðina sem þú finnur á hverri verkyfirlitssíðu neðst til vinstri. Þar getur þú sett inn nákvæmar upplýsingar um tilboðið þitt og jafnvel latið með fylgiskjöl á formi (Word, PDF etc).

Hvernig get ég eytt tilboði sem ég hef boðið í verk?

Farðu inn á þína aðgerðastjórnunarsíðu, veldu verkið, og ýttu á "taka aftur tilboð" slóðina.

Hvernig get ég haft samband við verkkaupann?

Þú getur skilið eftir einkaskilaboð handa þeim í skilaboðaskjóðunni. Ef þú skilur eftir einkaskilaboð þá getur einungis sá þjónustuaíli, sem skilaboðið er stílað á, lesið skilaboðið en ekki aðrir þjónustuaðilar. Verkkaupi mun fá tölvupóst sendan til sín sem segir honum að skilaboð bíði hans í skilaboðaskjóðunni.

Hvernig get ég uppfært tilboð sem ég hef þegar boðið í?

Áður en tilboðið er tekið er þér frjálst að hækka eða lækka tilboð frá þér. Leggðu einfaldlega inn nýtt tilboð í verkið og þar með mun eldra tilboð þitt þurrkast út.

Hvernig sel ég þjónustu sem verktaki/þjónustuaðili?

Ef þú ert nýr hjá Handtak.is, ýttu á þjónustuaðili slóðina sem er efst eða neðst á hverri síðu og þú munt vera leiddur í gegnum skráningarferlið.

Hvernig virkar einkunnagjöfin?

Þegar þjónustuaðili skilar af sér verki gefur verkkaupi honum einkunn fyrir verkið. Einkunnin byggist á að skil séu í samræmi við útboðslýsingu og svo það sem ykkar fór á milli. Yfirleitt mun einkunnagjöf hjálpa þeim sem vinna verk í gegnum Handtak.is að fá fleiri verk og jafnvel á hærri verðum þar sem verkkaupar geta verið vissir um að orð standi. Ef hinsvegar þú ert ósáttur við einkunn geturðu haft samband við Handtak.is og við tökum hana út ef vafi leikur á að hún sé ósanngjörn, þar sem slæm ósanngjörn einkunn getur skemmt fyrir þjónustuaðilum.

Reglur

Hvernig eru persónulegu upplýsingar mínar ásamt netfangi meðhöndlaðar?

Handtak.is fer með persónulegar upplýsingar þínar í fyllsta trúnaði. Þessar upplýsingar ásamt netfangi verða ALDREI seldar eða látnar öðrum aðilum í té. Allar samskiptaupplýsingar verða aðeins sendar á milli verkkaupa og þjónustuaðila. Handtak.is notar netföng og símanúmer aðeins til að senda áminningar og reikningsupplýsingar með tölvupósti. Handtak.is vill tryggja persónuvernd og við gerum allt sem í okkar valdi stendur til að tryggja öryggi notenda okkar.

Skráning á Handtak.is

Hvernig skrái ég mig á Handtak.is?

Smelltu á Verkkaupi eða Þjónustuaðili eftir því hvort þú vilt auglýsa eftir þjónustu (selja þjónustu) sem verkkaupi eða veita þjónustu sem þjónustuaðili.